Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat), 97. mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat), 97. mál

4. mars 2025

 

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þeirri breytingu á lögum sem hér er til umsagnar og telja hana vera mikilvægt skref í þá átt að tengja námsmatið við áherslur í gildandi aðalnámskrá og hæfniviðmið og að mæta þörfum allra barna.

Samræmd könnunnarpróf, sem ákveðið var að afnema tímabundið árið 2022, hentuðu ekki öllum nemendum og voru hvorki í takti við breyttar áherslur í skólastarfi né aðalnámskrá.

Mikilvægt er að færa námsmat nær nemendum og kennurum, ef svo má segja, því að það  er til þess fallið að nemendur fái betri endurgjöf og þar með meiri möguleika til að gera betur. 

Með breytingu á lögum um grunnskóla er þeim ætlað að stuðla að jöfnum tækifærum allra barna til einstaklingsmiðaðs náms og leiðsagnarmats. Þetta hentar vel þeim nemendum sem þurfa vegna fötlunar á því að halda og eiga rétt á að tekið sé mið að getu og þörfum þeirra og hvar þeir eru staddir námslega hverju sinni.

Samtökin vilja vekja athygli á gríðarlegri vöntun á verklagi og verkfærum fyrir kennara til að fara eftir til að samræma umgjörð og ferli við gerð einstaklingsnámskráa, námsmats, matsaðferða og matsgagna  fyrir þá nemendur sem vegna fötlunar sinnar geta ekki uppfyllt þau hæfniviðmið við lok 4. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.

Í tengslum við námsmat fyrir nemendur, sem eru með einstaklingsnámskrá eða aðlagað námsefni, er afar brýnt að leggja markvissa vinnu í að skilgreina vel stjörnumerkingar og verklag og þá sérstaklega í tengslum við inngildandi menntun á öllum skólastigum. Nemendur sem útskrifast úr grunnskóla með stjörnumerkt námsmat  (*) á rafrænu útskriftarskírteini (A*, B*, C* eða D*) hafa ekki möguleika á að taka almenn fög í þeim greinum í framhaldsskóla. Þetta þarf að rýna vel með tilliti til aðgengis fatlaðra ungmenna að menntun til framtíðar.

 

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna  um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur á komandi mánuðum. 

Meginmarkmið samningsins er að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og raunhæf tækifæri til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins, til jafns við aðra og án aðgreiningar.

24. gr. samningsins hefur yfirskriftina Menntun og hljóðar svo:

      1.      Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til menntunar. Í því skyni að þessi réttur verði að veruleika án mismununar og á grundvelli jafnra tækifæra skulu aðildarríkin tryggja menntakerfi án aðgreiningar á öllum skólastigum og við símenntun sem beinist að því:

         a)          að mannleg geta og tilfinning fyrir reisn og eigin verðleikum þroskist til fulls og að virðing fyrir mannréttindum, grundvallarfrelsi og mannlegum margbreytileika vaxi, 

         b)          að fatlað fólk geti þroskað til fulls persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu,

         c)          að gera fötluðu fólki kleift að taka virkan þátt í frjálsu samfélagi.

     2.      Til að þessi réttur megi verða að veruleika skulu aðildarríkin tryggja:

         a)          að fatlað fólk sé ekki útilokað frá almenna menntakerfinu á grundvelli fötlunar og að fötluð börn séu ekki útilokuð frá gjaldfrjálsu skyldunámi á grunnskólastigi eða námi á framhaldsskólastigi á grundvelli fötlunar,

         b)          að fatlað fólk hafi aðgang til jafns við aðra að endurgjaldslausri grunn- og framhaldsskólamenntun án aðgreiningar, sem uppfyllir almennar kröfur um gæði, í þeim samfélögum þar sem það býr,

         c)          að viðeigandi aðlögun sé veitt í samræmi við þarfir viðkomandi einstaklings,

         d)          að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning innan almenna menntakerfisins til þess að greiða fyrir árangursríkri menntun þess, 

         e)          að árangursríkur, einstaklingsmiðaður stuðningur sé veittur í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska sem samræmist markmiðinu um fulla þátttöku án aðgreiningar.

     3.      Aðildarríkin skulu gera fötluðu fólki kleift að öðlast hagnýta og félagslega færni í því skyni að greiða fyrir fullri þátttöku þess, til jafns við aðra, í skólastarfi og sem borgarar í samfélaginu. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir í þessu skyni, meðal annars:

         a)          auðvelda fólki að læra punktaletur, óhefðbundna ritun, auknar og óhefðbundnar samskiptaleiðir, -máta og -form og færni í skynjun og hreyfifærni, ásamt því að greiða fyrir jafningjastuðningi og jafningjaráðgjöf,

         b)          auðvelda fólki að læra táknmál og efla sjálfsmynd heyrnarlauss og heyrnarskerts fólks með tilliti til tungumáls,

         c)          tryggja að menntun fólks, og þá sérstaklega barna, sem er blint eða sjónskert, heyrnarlaust eða heyrnarskert eða fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu fari fram á viðeigandi tungumálum og tjáningarmáta sem hentar viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska.

     4.      Í því skyni að tryggja að fyrrnefnd réttindi verði að veruleika skulu aðildarríkin gera viðeigandi ráðstafanir til þess að ráða kennara, þar á meðal fatlaða kennara með sérþekkingu á táknmáli og/eða punktaletri, og þjálfa fagfólk og starfsfólk sem starfar á öllum sviðum menntakerfisins. Slík þjálfun skal fela í sér vitund um fötlun og notkun viðeigandi aukinna og óhefðbundinna samskiptaleiða, -máta og -forma, kennsluaðferða og námsgagna sem er ætlað að styðja fatlað fólk.

     5.      Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk hafi aðgang að almennu námi á háskólastigi, starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu og símenntun án mismununar og til jafns við aðra. Aðildarríkin skulu, í þessu skyni, tryggja að fatlað fólk fái notið viðeigandi aðlögunar.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja og áhuga til samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld hvað varðar hagsmuni og réttindi fatlaðra barna almennt og sérstaklega barna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir varðandi  þær breytingar á lögum  sem hér eru til umsagnar og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, þar sem segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

 

Nálgast má lagafrunvarpið sem umsögnin á við hér.