Í dag 21. október 2023 kl. 13.00 er málþing um húsnæðismál á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar og Húsbyggingasjóðs Þroskahjálpar.
Málþingið er haldið á Hotel Reykjavík Grand. Hægt er að horfa í streymi hér að ofan. Streymið hófst kl. 13, og upptaka af málþinginu verður aðgengileg eftir að því lýkur.
Þak yfir höfuðið Málþing um húsnæðismál fatlaðs fólks
Málþingsstjórar: Sigmundur Ernir Rúnarsson og Katrín Guðrún Tryggvadóttir
13.00–13.10 — Setning Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
13.10–13.20 — Ávarp og innlegg Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra
13.20–13.45 — Nýja húsið mitt Ylfa Gunnlaugsdóttir – Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir til aðstoðar
13.45–14.10 — Staðan í húsnæðismálum fatlaðs fólks og tillögur um úrbætur Haraldur Líndal Haraldsson gerir grein fyrir niðurstöðu starfshóps
14.10–14.20 — Lagalegar skyldur varðandi húsnæðisuppbyggingu fyrir fatlað fólk Flóki Ásgeirsson, lögmaður
14.20–14.40 — HLÉ OG KAFFIVEITINGAR
14.40–15.00 — Hvað er í boði varðandi stuðning við uppbyggingu húsnæðis Elmar Erlendsson, fulltrúi frá HMS
15.00–15.20 — Uppbygging húsnæðis og kostnaður við rekstur þjónustu: „Hvar liggur hundurinn grafinn?“ Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
15.20–15.40 — Gerð húsnæðis og gæði: Er þörf á meiri fjölbreytileika? Friðrik Sigurðsson, formaður stjórnar Húsbyggingasjóðs Landssamtakanna Þroskahjálpar
15.40–15.50 — Hvernig vil ég búa? Ólafur Snævar Aðalsteinsson
15.50–16.30 — PALLBORÐSUMRÆÐUR: Hvað er til ráða og hvað er framundan? Þátttakendur: Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags– og vinnumarkaðsráðherra Heiða Björg Hilmisdóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, Landssamtökin Þroskahjálp Guðbrandur Sigurðsson, Brynja leigufélag Ólafur Snævar Aðalsteinsson, fulltrúi fatlaðs fólks
16.30 — Ráðstefnuslit og léttar veitingar
Hotel Reykjavík Grand — hvar er gengið inn?
Hotel Reykjavík Grand er við Sigtún 28 í Reykjavík.
Aðgengi fyrir bíla er frá Kringlumýrarbraut og frá Sigtúni.
Hér er kort af staðsetningunni:
Aðgengi
Gott aðgengi er fyrir fólk með hreyfihömlun á Hotel Reykjavík Grand.
Það verður táknmálstúlkur bæði á fundinum og í streyminu.
Ef þú lendir í vandræðum getur þú hringt í Þroskahjálp í síma 588 9390.