Lifandi tækni

 

Lifandi tækni - málþing Þroskahjálpar um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

Laugardaginn 19. október 2024 kl. 13.00 heldur Þroskahjálp málþing um fatlað fólk og tækni.

Málþingið er haldið á Hótel Reykjavík Grand.

Get ég komið á málþingið?
Já, öll eru velkomin á Hótel Reykjavík Grand. Við byrjum kl. 13.00.
Vinsamlegast skráið ykkur með því að smella á skráningar-hnappinn neðar á síðunni.

Get ég horft í tölvunni eða símanum?
Já, málþingið verður í streymi.
Það mun birtast hér á þessari síðu nokkrum dögum fyrir málþingið.
Streymið hefst kl. 13, og upptaka af málþinginu verður aðgengileg eftir að því lýkur.


Skráning á málþingið er hér

Dagskrá

Lifandi tækni
Málþing um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

Facebook viðburður


Málþingsstjóri:

Fabiana Morais


13.00–13.10 — Setning

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar


13.10–13.20 — Ávarp og innlegg

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra


13.20–13.40 — Stafræni Íslendingurinn

Ableismi og fötlunarfordómar: Hvað þarf fólk að geta gert á netinu, til hvers er ætlast af fólki, og hvernig erum við á ólíkum stað til að geta mætt þeim kröfum.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, doktorsnemi í fötlunarfræðum


13.40–13.50
— Stutt hlé í 10 mínútur


13.50–14.20 — Sófaspjall 1

Samfélagsleg ábyrgð og þátttaka stjórnvalda
Vítt spjall hugsað sem inngangur að umræðunni sem fram fer í framhaldinu.
Hvað hafa stjórnvöld verið að gera og hvaða sýn hafa þau?

Þátttakendur
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra
Guðmundur Oddur Magnússon, listamaður og prófessor í hönnun við Listaháskóla Íslands

Spyrill
Atli Már Haraldsson


14.20–14.30
— Stutt hlé í 10 mínútur


14.30–15.00 — Sófaspjall 2

Tækni og manneskja

Fókus á gervigreind og tækni í víðum skilningi. Tala um hættuna á því að gervigreind jaðarsetji fatlað fólk enn frekar. Ítreka að það eru alltaf manneskjur sem bera ábyrgð á því ef tækni verður til þess að mismuna og jaðarsetja hópa fólks.

Þátttakendur
Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við háskólann á Bifröst
Rósa Hjörvar, stafrænn verkefnastjóri, ÖBÍ

Spyrill
Haukur Guðmundsson


15.00–15.20
— Lengra hlé í 20 mínútur


15.20–15.50 — Sófaspjall 3

Tækni og samfélag

Spjall milli aðila sem hafa tekið þátt í verkefni Þroskahjálpar s.l. mánuði um hvað gerist þegar apparat eins og Þroskahjálp leitar eftir samtali við tæknigeirann til að miðla upplýsingum, skilningi, viðhorfum og innsýn. Í þessum samtölum hafa kviknað fjölmargar hugmyndir um bæði hvernig tækni getur verið meira inngildandi og líka hvernig nota má tækni til að brúa bilið sem verður til í samspili skerðinga og umhverfis í lífi fatlaðs fólks.

Þátttakendur
Magga Dóra, stafrænn hönnunarleiðtogi, Mennsk ráðgjöf
Ingvi Guðmundsson, hönnunarstjóri, Gangverk

Spyrill
Ólafur Snævar Aðalsteinsson


15.50–16.00
— Stutt hlé í 10 mínútur


16.00–16.30 — Sófaspjall 4

Tækni og tækifæri

Umræða um útópíu — hvernig getum við unnið þetta verkefni með sem mestum árangri, tryggt miðlun upplýsinga um réttindi og þarfir fatlaðs fólks til þeirra sem hanna, þróa og nota tækni og um leið tryggt tæknilæsi fatlaðs fólk til að tæknin verði tól til inngildingar frekar en jaðarsetningar?

Þátttakendur
Adda Guðrún Gylfadóttir,  stafræn örfræðsla og efnissköpun, Alda
Hannes Högni Vilhjálmsson, prófessor, tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Spyrill
Helga Pálína Sigurðardóttir


16.30–17.30 — Léttar veitingar, spjall og tengslamyndun

Ýmsar tæknilausnir til að sjá og prófa
— Sýndarveruleikagleraugu: leyfa fólki að prófa þá veruleika sem Þroskahjálp og/eða HR hafa skapað
— Umferlisöpp: frá þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda og sjónskerta
— Önnur tækni sem nýtist fötluðu fólki til aukinnar þátttöku í samfélaginu
 

Skráning á málþingið er hér

 

Hótel Reykjavík Grand — hvar er gengið inn?

Hótel Reykjavík Grand er við Sigtún 28 í Reykjavík.

Aðgengi fyrir bíla er frá Kringlumýrarbraut og frá Sigtúni.


Hér er kort af staðsetningunni:

 

 

Aðgengi

Gott aðgengi er fyrir fólk með hreyfihömlun á Hotel Reykjavík Grand.

Það verður táknmálstúlkur bæði á fundinum og í streyminu.

Ef þú lendir í vandræðum getur þú hringt í Þroskahjálp í síma 588 9390.