Breytingar á heimasíðu

Vekjum athygli breytingum á heimasíðu okkar. Nú eru komnir tveir nýir tenglar, annars vegar „Álit og umsagnir“ og hins vegar „Greinar, ávörp o.þ.h.“

Vekjum athygli breytingum á heimasíðu okkar. Nú eru komnir tveir nýir tenglar, annars vegar „Álit og umsagnir“ og hins vegar „Greinar, ávörp o.þ.h.“

Við munum nota þessa tengla til að setja inn ýmislegt efni er varðar starf og stefnu samtakanna, m.a. álit samtakanna á lagafrumvörpum, reglugerðum o.þ.h., greinargerðir og bréfaskriftir er varða mál sem verið er að vinna að eða tilefni er til að vekja athylgi á o.s.frv.

Undir tenglinum „Greinar, ávörp o.þ.h.“ verður að finna greinar sem birtast í blöðum eftir fulltrúa samtakanna og einnig erindi, fyrirlestra, ræður, ávörp o.þ.h. sem fulltrúar samtakanna flytja á fundum og málþingum og varða samtökin og/eða málefni sem þau láta sig varða. Þessir nýju tenglar eru hugsaðir til að auka sýnileika samtakanna og auðvelda aðgang að upplýsingum um stefnu þeirra og starfsemi.