Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (námsbrautir o.fl.)

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (námsbrautir o.fl.)

 

5. mars 2025

 

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks er lögð sérstök áhersla á skyldur ríkja til að tryggja fötluðum börnum og ungmennum sömu réttindi og tækifæri og önnur börn hafa og nægilegan stuðning og vernd til að það geti orðið að veruleika.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er í gangi af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans. Meginmarkmið samningsins er að tryggja fötluðu fólki raunhæf tækifæri til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra og án aðgreiningar, þ.m.t. og ekki síst á sviði menntunar, sbr. ákvæði 24. gr. samningsins (sjá að neðan) og 4. almennu athugsemdir nefndar samkvæmt samningnum varðandi menntun, General comment No. 4 on Article 24 - the right to inclusive education, sem nálgast má á heimasíðu nefndarinnar á hlekk að neðan.

https://www.ohchr.org/en/documents/general-comments-and-recommendations/general-comment-no-4-article-24-right-inclusive 

Landssamtökin Þroskahjálp leggja  mikla áherslu á að lög sem varða börn og ungmenni sérstakalega taki fullt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðra barna og ungmenna almennt og sérstaklega barna og ungmenna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfra barna og ungmenna. Það er mjög afdráttarlaus og mikilvæg skylda íslenska ríkisins að gæta þessa við lagasetningu af þessu tagi og sérstaklega þegar um er að ræða réttindi eða þjónustu sem varða alþjóðlega viðurkennd mannréttindi, eins og á við um aðgang að menntun.

Þessi skylda er sérstaklega áréttuð í 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar.

Í samningnum eru ýmis ákvæði sem geta augljóslega haft mikla þýðingu í sambandi við það mál sem hér er til umsagnar, s.s. í 5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun, í 7. gr. samningsins hefur yfirskriftina Fötluð börn.

24. gr. samningsins hefur yfirskriftina Menntun og hljóðar svo:

     1.      Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til menntunar. Í því skyni að þessi réttur verði að veruleika án mismununar og á grundvelli jafnra tækifæra skulu aðildarríkin tryggja menntakerfi án aðgreiningar á öllum skólastigum og við símenntun sem beinist að því:
         a)          að mannleg geta og tilfinning fyrir reisn og eigin verðleikum þroskist til fulls og að virðing fyrir mannréttindum, grundvallarfrelsi og mannlegum margbreytileika vaxi, 
         b)          að fatlað fólk geti þroskað til fulls persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu,
         c)          að gera fötluðu fólki kleift að taka virkan þátt í frjálsu samfélagi.
     2.      Til að þessi réttur megi verða að veruleika skulu aðildarríkin tryggja:
         a)          að fatlað fólk sé ekki útilokað frá almenna menntakerfinu á grundvelli fötlunar og að fötluð börn séu ekki útilokuð frá gjaldfrjálsu skyldunámi á grunnskólastigi eða námi á framhaldsskólastigi á grundvelli fötlunar,
         b)          að fatlað fólk hafi aðgang til jafns við aðra að endurgjaldslausri grunn- og framhaldsskólamenntun án aðgreiningar, sem uppfyllir almennar kröfur um gæði, í þeim samfélögum þar sem það býr,
         c)          að viðeigandi aðlögun sé veitt í samræmi við þarfir viðkomandi einstaklings,
         d)          að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning innan almenna menntakerfisins til þess að greiða fyrir árangursríkri menntun þess, 
         e)          að árangursríkur, einstaklingsmiðaður stuðningur sé veittur í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska sem samræmist markmiðinu um fulla þátttöku án aðgreiningar.
     3.      Aðildarríkin skulu gera fötluðu fólki kleift að öðlast hagnýta og félagslega færni í því skyni að greiða fyrir fullri þátttöku þess, til jafns við aðra, í skólastarfi og sem borgarar í samfélaginu. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir í þessu skyni, meðal annars:
         a)          auðvelda fólki að læra punktaletur, óhefðbundna ritun, auknar og óhefðbundnar samskiptaleiðir, -máta og -form og færni í skynjun og hreyfifærni, ásamt því að greiða fyrir jafningjastuðningi og jafningjaráðgjöf,
         b)          auðvelda fólki að læra táknmál og efla sjálfsmynd heyrnarlauss og heyrnarskerts fólks með tilliti til tungumáls,
         c)          tryggja að menntun fólks, og þá sérstaklega barna, sem er blint eða sjónskert, heyrnarlaust eða heyrnarskert eða fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu fari fram á viðeigandi tungumálum og tjáningarmáta sem hentar viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska.
     4.      Í því skyni að tryggja að fyrrnefnd réttindi verði að veruleika skulu aðildarríkin gera viðeigandi ráðstafanir til þess að ráða kennara, þar á meðal fatlaða kennara með sérþekkingu á táknmáli og/eða punktaletri, og þjálfa fagfólk og starfsfólk sem starfar á öllum sviðum menntakerfisins. Slík þjálfun skal fela í sér vitund um fötlun og notkun viðeigandi aukinna og óhefðbundinna samskiptaleiða, -máta og -forma, kennsluaðferða og námsgagna sem er ætlað að styðja fatlað fólk.
     5.      Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk hafi aðgang að almennu námi á háskólastigi, starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu og símenntun án mismununar og til jafns við aðra. Aðildarríkin skulu, í þessu skyni, tryggja að fatlað fólk fái notið viðeigandi aðlögunar.

Landssamtökin fagna öllum breytingum á reglum um innritun í framhaldsskóla, sem hafa að markmiði að taka meira tillit til þarfa fatlaðra ungmenna, nemenda með langvarandi stuðningsþarfir og nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakrunn. Hingað til hafa fötluð ungmenni ekki haft jafnan aðgang að námi eftir áhugasviði og stuðningsþörfum. Inngildandi námi á framhaldsskólastigi og aðgengi að fjölbreytni í námi verður að taka fullt tillit til þess.

Landssamtökin Þroskahjálp óska upplýsinga um hvort og þá hvernig mennta- barnamálaráðuneytið hagaði samningu þess frumvarps, sem hér er til umsagnar, m.t.t. þess að tryggja það uppfyllti allar þær kröfur sem leiða af ákvæðum samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og þá sérstaklega 24. gr. smaningsins og lýsa miklum áhuga og vilja til samráðs við mennta- og barnamálaráðuneytið við það mikilvæga verkefni og vísa í því sambandi til eftirfarandi ákvæðis 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks.

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Samtökin áskilja sér rétt til að koma frekari athugasemdum og ábendingum varðandi frumvarpið til ráðuneytis og/eða Alþingis á síðari stigum.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Nálgast má málið sem umsögnin á við hér