Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform breytingu á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög
17. febrúar 2025
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Landssamtökin Þroskahjálp taka undir það sem fram kemur í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka, dags. 13. Febrúar 2025, um þau áform, sem hér eru til umsagnar.
Samtökin áskilja sér rétt til að koma að frekari athugsemdum á síðari stigum.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Nálgast má mál sem umsögnin á við hér.