Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingar á ákvæðum laga um almannatryggingar um aldursviðbót og tengingu fjárhæða lífeyrisgreiðslna við launavísitölu
17. febrúar 2025
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Landssamtökin Þrsokahjálp lýsa stuðningi við þau áform sem hér eru til umsagnar.
Samtökin áskilja sér rétt til að koma frekari athugsemdum á framfæri á síðari stigum
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Nálgast má málið sem umsögnin á við hér.