Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat)

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat)

                                                                                                    

15. júlí 2024

 

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og heimsmarkmiðum SÞ, þar sem meginmarkmiðið er að skilja engan eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þeirri breytingu á lögum sem hér er til umsagnar og telja hana vera mikilvægt skref í þá átt að tengja námsmatið við áherslur í gildandi aðalnámskrá og hæfniviðmið.

Samræmd könnunnarpróf, sem ákveðið var að afnema tímabundið árið 2022, hentuðu ekki öllum nemendum og voru hvorki í takti við breyttar áherslur í skólastarfi né aðalnámskrá.

Mikilvægt er að færa námsmat nær nemendum og kennurum, ef svo má segja, því að það  er til þess fallið að nemendur fái betri endurgjöf og þar með meiri möguleika til að gera betur.

Samkvæmt áformunum um breytingu á lögum um grunnskóla er þeim ætlað að stuðla að jöfnum tækifærum allra barna til einstaklingsmiðaðs náms og leiðsagnarmats. Þetta hentar vel þeim nemendum sem þurfa vegna fötlunar á því að halda og eiga rétt á að tekið sé mið að getu og þörfum þeirra og hvar þeir eru staddir námslega hverju sinni.

Samtökin vilja vekja athygli á gríðarlegri vöntun á verklagi og verkfærum fyrir kennara til að fara eftir til að samræma umgjörð og ferli við gerð einstaklingsnámskráa, námsmats, matsaðferða og matsgagna  fyrir þá nemendur sem vegna fötlun sinnar geta ekki uppfyllt þau hæfniviðmið  við lok 4. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.

Í tengslum við námsmat fyrir nemendur sem eru með einstaklingsnámskrá eða aðlagað námsefni er afar brýnt að leggja markvissa vinnu í að skilgreina vel stjörnumerkingar og verklag og þá sérstaklega í tengslum við inngildandi menntun á öllum skólastigum. Nemendur sem útskrifast úr grunnskóla með stjörnumerkt námsmat  (*) á rafrænu útskriftarskírteini      (A*, B*, C* eða D*) hafa ekki möguleika á að taka almenn fög í þeim greinum í framhaldsskóla. Þetta þarf að rýna vel með tilliti til aðgengis fatlaðra ungmenna að menntun til framtíðar.

 

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er af hálfu ríkisins í gangi  sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

Meginmarkmið samningsins er að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og raunhæf tækifæri til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins, til jafns við aðra og án aðgreiningar.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja því áherslu á að sérstaklega verði gætt að því að taka fullt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðra barna almennt og barna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir sérstaklega.  Það er mjög afdráttarlaus og mikilvæg skylda íslenska ríkisins að gæta þessa við stefnumótun af þessu tagi. Sú skylda er sérstaklega áréttuð í 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingarÞar segir m.a.:

4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingarÞar segir m.a.:

 

     1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
        Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
         a)          að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)          að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
         c)          að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, … 
(Feitletr. og undirstr. Þroskahj.)

Í samningnum er nokkrar greinar og mörg ákvæði sem líta þarf sérstaklega til við stefnumótun þá sem hér er til umsagnar. 

7. gr. samningsins hefur yfirskriftina Fötluð börn og hljóðar svo:

     1.      Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að fötluð börn fái notið allra mannréttinda og grundvallarfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 
     2.      Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 
     3.      Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll málefni er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefið tilhlýðilegt vægi í samræmi við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er viðeigandi tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika.

5. gr. samningsins hefur yfirskiftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:

      1.      Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
     2.      Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 
     3.      Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. 
     4.      Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa. 
(Feitletr. Þroskahj.)

24. gr. samningsins hefur yfirskriftina Menntunog hljóðar svo:

      1.      Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til menntunar. Í því skyni að þessi réttur verði að veruleika án mismununar og á grundvelli jafnra tækifæra skulu aðildarríkin tryggja menntakerfi án aðgreiningar á öllum skólastigum og við símenntun sem beinist að því:
         a)          að mannleg geta og tilfinning fyrir reisn og eigin verðleikum þroskist til fulls og að virðing fyrir mannréttindum, grundvallarfrelsi og mannlegum margbreytileika vaxi, 
         b)          að fatlað fólk geti þroskað til fulls persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu,
         c)          að gera fötluðu fólki kleift að taka virkan þátt í frjálsu samfélagi.
     2.      Til að þessi réttur megi verða að veruleika skulu aðildarríkin tryggja:
         a)          að fatlað fólk sé ekki útilokað frá almenna menntakerfinu á grundvelli fötlunar og að fötluð börn séu ekki útilokuð frá gjaldfrjálsu skyldunámi á grunnskólastigi eða námi á framhaldsskólastigi á grundvelli fötlunar,
         b)          að fatlað fólk hafi aðgang til jafns við aðra að endurgjaldslausri grunn- og framhaldsskólamenntun án aðgreiningar, sem uppfyllir almennar kröfur um gæði, í þeim samfélögum þar sem það býr,
         c)          að viðeigandi aðlögun sé veitt í samræmi við þarfir viðkomandi einstaklings,
         d)          að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning innan almenna menntakerfisins til þess að greiða fyrir árangursríkri menntun þess, 
         e)          að árangursríkur, einstaklingsmiðaður stuðningur sé veittur í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska sem samræmist markmiðinu um fulla þátttöku án aðgreiningar.
     3.      Aðildarríkin skulu gera fötluðu fólki kleift að öðlast hagnýta og félagslega færni í því skyni að greiða fyrir fullri þátttöku þess, til jafns við aðra, í skólastarfi og sem borgarar í samfélaginu. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir í þessu skyni, meðal annars:
         a)          auðvelda fólki að læra punktaletur, óhefðbundna ritun, auknar og óhefðbundnar samskiptaleiðir, -máta og -form og færni í skynjun og hreyfifærni, ásamt því að greiða fyrir jafningjastuðningi og jafningjaráðgjöf,
         b)          auðvelda fólki að læra táknmál og efla sjálfsmynd heyrnarlauss og heyrnarskerts fólks með tilliti til tungumáls,
         c)          tryggja að menntun fólks, og þá sérstaklega barna, sem er blint eða sjónskert, heyrnarlaust eða heyrnarskert eða fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu fari fram á viðeigandi tungumálum og tjáningarmáta sem hentar viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem hámarkar námsþroska og félagsþroska.
     4.      Í því skyni að tryggja að fyrrnefnd réttindi verði að veruleika skulu aðildarríkin gera viðeigandi ráðstafanir til þess að ráða kennara, þar á meðal fatlaða kennara með sérþekkingu á táknmáli og/eða punktaletri, og þjálfa fagfólk og starfsfólk sem starfar á öllum sviðum menntakerfisins. Slík þjálfun skal fela í sér vitund um fötlun og notkun viðeigandi aukinna og óhefðbundinna samskiptaleiða, -máta og -forma, kennsluaðferða og námsgagna sem er ætlað að styðja fatlað fólk.
     5.      Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk hafi aðgang að almennu námi á háskólastigi, starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu og símenntun án mismununar og til jafns við aðra. Aðildarríkin skulu, í þessu skyni, tryggja að fatlað fólk fái notið viðeigandi aðlögunar.

 

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja og áhuga til samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld hvað varðar hagsmuni og réttindi fatlaðra barna almennt og sérstaklega barna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir varðandi  þær breytingar á lögum  sem hér eru til umsagnar og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, þar sem segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

 

Nálgast má mál sem umsögn á við hér