Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæðir fylgi launavísitölu), 53. mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæðir fylgi launavísitölu), 53. mál

 

             14. október 2024

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar.

Samtökin Þroskahjálp taka eindregið undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu og lýsa stuðningi við það.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér