ÁSKORUN

Eftirfarandi áskorun send í dag vegna verkfalls framhaldsskólakennara: Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson Landssamtökin Þroskahjálp skora á samninganefnd ríkisins að ganga nú þegar til samninga við Félag framhaldsskólakennara. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir verulegum áhyggjum af framhaldsskólanemendum með fötlun og afdrifum þeirra í

Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson

Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson

 Landssamtökin Þroskahjálp skora á samninganefnd ríkisins að ganga nú þegar til samninga við Félag framhaldsskólakennara. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir  verulegum áhyggjum af framhaldsskólanemendum með fötlun og afdrifum þeirra í yfirstandandi verkfalli framhaldsskólakennara. Um er að ræða nemendahóp  sem vegna fötlunar sinnar þolir oft illa allar  breytingar frá hefðbundnu lífi. Koma þarf  í veg fyrir þann alvarlega skaða sem verkfallið hefur á þessa einstaklinga.

 

Virðingarfyllst,

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Guðrún Þórðardóttir, varaformaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar