Dagana 19.-21. október 2021 fer fram 3 daga námskeið um Bjargráðakerfið BJÖRG.
Bjargráðakerfið BJÖRG (Skills System) er aðferð til að ná tökum á tilfinningastjórn. Aðferðin byggir á díalektískri atferlismeðferð (Dialectical Behavior Therapy) og er þróuð til að gagnast jaðarhópum sem hafa átt erfitt með að nýta sér hefðbundna nálgun. Umfangsmikið efni liggur fyrir í íslenskri þýðingu. Námskeiðið er ætlað fagfólki sem vinnur þjónustu-, umönnunar- og/eða meðferðarstörf á sviði félags- og geðheilbrigðisþjónustu. Námskeiðið samsvarar 24 kennslustundum.
Innihald:
- Fræðilegur grunnur og forsendur Bjargráðakerfisins.
- Kennd hugtök aðferðarinnar og uppbygging kerfisins.
- Þjálfun í notkun aðferðarinnar með æfingum og hlutverkaleikjum.
- Kennsla í skipulagi og uppbyggingu einstaklings- og hópþjálfunar.
Kennsla:
- Umsjón námskeiðsins, kennsla og þjálfun er í höndum eftirfarandi aðila sem allir hafa réttindi sem bjargráðaþjálfar:
- Bjargey Una Hinriksdóttir, þroskaþjálfi
- Brynja Guðmundsdóttir, sálfræðingur
- Elva Ösp Ólafsdóttir, þroskaþjálfi
- Halldór Kr. Júlíusson, sálfræðingur
- Sandra Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi
- Þóra Björk Bjarnadóttir, sálfræðingur
Höfundurinn, dr. Julie Brown, tekur þátt í hluta námskeiðsins í gegn um fjarfundabúnað.
Kennsluefni:
- 2 fjarkennslunámskeið: Grunnnámskeið og námskeið í notkun kerfisins. Námskeiðin eru á ensku en með íslenskum texta. Þátttakendur fá aðgang að efninu þegar þeir greiða þátttökugjald að námskeiðinu. Ætlast til að þeir kynni sér efnið fyrir námskeiðið.
- Þátttakendur fá eintak af grunnbók höfundar: The Emotion Regulation Skills System for the Cognitively Challanged Client: A DBTTM-Informed Approach (2016).
- Þátttakendur fá aðgang að íslenskri þýðingu á handbók sem notuð er sem vinnubók í kennslu og þjálfun.
- Þátttakendur fá kynningu á og aðgang að 12 vikna meðferðarnámskeiði í íslenskri þýðingu sem hentar bæði hópum eða einstaklingum.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að hafa þekkingu til að nota Bjargráðakerfið í faglegu starfi og skipuleggja einstaklings- og hópnámskeið.
Námskeiðið er haldið af félaginu Bjargráð ehf. Félagið vinnur að innleiðingu Bjargráðakerfisins sem verkfæris í félags- og geðheilbrigðisþjónustu hér á landi. Félagið mun veita þátttakendum eftirfylgd með ráðgjöf, vinnustofum og aðgang að efni í íslenskri þýðingu.
Þátttökugjald er kr. 95.000. Í boði er að panta gistingu á Hótel Örk sem þátttakendum býðst á hagstæðu verði, þátttakendur panta gistinguna með því að hafa samband við Hótel Örk. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Skráning fer fram hér og nálgast má frekari upplýsingar um námskeiðið á viðburðinum „Bjargráðakerfið BJÖRG“ á Facebook; https://fb.me/e/2t9AE8cFd.