Daðahúsi færð sumar gjöf

Afhending gjafarinnar
Afhending gjafarinnar
Daðahúsi á Flúðum barst góð gjöf þann 11. maí sl. þegar félagar úr Lionsklúbbnum Þór komu þangað færandi hendi með forláta gasgrill sem mun án efa koma sér vel fyrir dvalargesti í húsinu.

Daðahúsi á Flúðum barst góð gjöf þann 11. maí sl. þegar félagar úr Lionsklúbbnum Þór komu þangað færandi hendi með forláta gasgrill sem mun án efa koma sér vel fyrir dvalargesti í húsinu.

Formaður stjórnar hússins, Sigmundur Stefánsson, veitti gjöfinni viðtöku og sést hann á meðfylgjandi mynd ásamt Bjarna Bjarnasyni, formanni klúbbsins og öðrum stjórnarmönnum í klúbbnum.

Félögum í Lionsklúbbnum Þór eru færðar alúðarþakkir fyrir þann hlýhug sem þeir sýna Landssamtökunum Þroskahjálp með þessari myndarlegu gjöf.