Landssamtökin Þroskahjálp auglýsa lausa stöðu framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri er nánasti samstarfsmaður formanns og stjórnar samtakanna. Hann ber ábyrgð á fjármunum og starfsmannamálum samtakanna.
Landssamtökin Þroskahjálp auglýsa lausa stöðu framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri er nánasti samstarfsmaður formanns og
stjórnar samtakanna. Hann ber ábyrgð á fjármunum og starfsmannamálum samtakanna.
Helstu verkefni:
- Daglegur rekstur samtakanna og umsjón með fjáröflunum og fjármálum
- Skipulagning ráðstefna og funda
- Kynning á málefnum fatlaðs fólks gagnvart almenningi og opinberum aðilum í samstarfi við
formann og stjórn
- Erlend samskipti
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á málefnum fatlaðs fólks
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Gott vald á ensku og einu norðurlandamáli
Leitað er eftir einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, tekur frumkvæði og getur unnið sjálfstætt
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2015. Umsókn ásamt ferliskrá og kynningarbréfi skal senda á netfangið umsokn@throskahjalp.is .
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Snæbjörnsdóttir á bryndis@throskahjalp.is
.