Frumvarp um lögfestingu lagt fram

Landssamtökin Þroskahjálp fagna því mjög að félags- og húsnæðismálaráðherra hafi nú lagt fram á Alþingi frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
 
Með lögfestingu samningsins yrði mannréttindum fatlaðs fólks veitt mjög aukin vernd. Fatlaður einstaklingur getur þá borið ákvæði samningsins fyrir sig sem ótvíræða réttarreglu fyrir stjórnvöldum og dómstólum. Lögfestingin mun vekja jafnt almenning og þá sem fjalla um málefni fatlaðs fólks fyrir dómstólum, í stjórnsýslu og við undirbúning að lagasetningu, til frekari vitundar um mannréttindi fatlaðs fólks og þá virðingu sem þeim sé sýnd í réttarríki.
Lögfestingin er m.a. afar mikilvægur liður í að tryggja betri framfylgd laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsaþarfir, af hálfu ríkis og sveitarfélaga. Óumdeilanlegt er, að mati Þroskahjálpar, að mikil þörf er á að bæta þá framfylgd verulega. Nýlegar skýrslur Ríkisendurskoðunar og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála staðfesta það.
 
Þá er augljóst að lögfesting samningsins væri mjög mikilvægur og áhrifaríkur þáttur til að framfylgja heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem voru samþykkt af öllum aðildarríkjum SÞ, þ.m.t. íslenska ríkinu, í september 2015. Ríki heims hafa skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu markmiðanna bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra. Meginmarkmið þeirra er að skilja engan eftir (e. “No one will be left behind”). Fatlað fólk hvarvetna í heiminum hefur verið og er enn "skilið eftir" á öllum sviðum samfélagsins. Ísland er engin undantekning frá því. Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks var gerður til að bregðast við því.
 
Heimsmarkmiðin eru nátengd alþjóðlega viðurkenndum mannréttindum sem mælt er fyrir um í fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða og framfylgja, m.a. og ekki síst Í samningi SÞ um réttindi fatlað fólks. Ljóst er að verulega vantar upp á að fatlað fólk njóti þessara réttinda og tækifæra á Íslandi til jafns við aðra. Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks og heimsmarkmið SÞ eru öflug tæki fyrir íslensk stjórnvöld til að tryggja að fatlað fólk á Íslandi fái notið þessara mannréttinda til jafns við aðra.
 
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa eindregnum stuðningi við þetta frumvarp um og  skora á Alþingi að hraða lögfestingunni eins og kostur er.