Gullkistan, framhlið á borðspilinu
Við hjá Þroskahjálp hvetjum öll sem hafa áhuga og getu að styrkja þetta verkefni.
Landssamtökin Þroskahjálp veittu viðurkenningu þessu lokaverkefni til B.A. gráðu í þroskaþjálfafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í vor.
Gullkistan
Gullkistan er borðspil sem inniheldur 300 spurningar táknaðar með tákn með tali tjáningarleiðinni.
Spilið hentar fyrir allt fólk frá 4ra ára aldri.
![Borðspilið Gullkistan, yfirlitsmynd Borðspilið Gullkistan, yfirlitsmynd](/static/files/Frettir/gullkistan-alltsaman.jpg)
Tákn með tali er tjáskiptaaðferð og eru lykilorð í setningu táknuð við töluðu orðin.
Aðferðin er málörvandi fyrir öll börn.
Söfnun á Karolina Fund
Til þess að koma spilinu í framleiðslu er nú í gangi söfnun inn á Karolina Fund.
Vefslóðin er: www.karolinafund.com/project/view/6046
Þetta er frábært spil sem hentar fullkomlega fyrir leikskóla, grunnskóla og öll okkar sem vilja æfa sig og læra tákn með tali.
Spilið stuðlar jafnframt að félagslegri þátttöku.