Landssamtökin Þroskahjálp standa að ráðstefnu með þessar yfirskrift þriðjudaginn 14. apríl nk. að Grand hótel Reykjavík.
Raðstefnunni er ætlað að benda á fjölbreyttar leiðir við uppbyggingu og rekstur húsnæðis ætluðu fötluðu fólki.
Hvernig þak yfir höfuðið ?
Landssamtökin Þroskahjálp standa að ráðstefnu með þessari yfirskrift þriðjudaginn 14. apríl nk. að Grand hótel
Reykjavík.
Raðstefnunni er ætlað að benda á fjölbreyttar leiðir við uppbyggingu og rekstur húsnæðis ætluðu fötluðu fólki.
Á ráðstefnunni verður m.a. skoðuð ákvæði í lögum og reglugerðum hvað þetta varðar. Fatlað fólk og foreldrar
fatlaðra barna segja frá sínum óskum og áætlunum. Skoðað verður hvort íbúa- og foreldrarekin þjónusta getur átt
framtíð fyrir sér hér á landi og litið verður til reynslu Svía í þeim efnum. Fatlað fólk segir frá
húsnæðisaðstæðum sínum auk þess sem leitað verður svara hjá opinberum yfirvöldum um hvort gert sé ráð fyrir
fötluðu fólki í áætlunum þeirra á lána- og leigumarkaði.
Vinsamlegast takið daginn frá.
Nánari dagskrá síðar .