Umboðsmaður Alþingis spyr ráðherra um breytt verklag TR

Umboðsmaður Alþingis hefur sent félags- og barnamálaráðherra bréf þar sem spurt er hvort hann sé meðvitaður um að afgreiðsla umsókna um örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun hafi mögulega breyst.
 
Landssamtökin Þroskahjálp hafa staðið í þessari baráttu upp á síðkastið og fagna fyrirspurn umboðsmanns.
 
Fyrirspurnin kemur til í kjölfar kvartana og ábendinga sem benda til að þessi framkvæmd kunni að hafa breyst þannig að umsóknum, einkum frá ungu fólki, sé í auknum mæli synjað á þeim grundvelli að endurhæfing sé ekki fullreynd.
Í bréfi til félags- og barnamálaráðherra eru nefnd dæmi um erindi sem umboðsmanni hafa borist þar sem bent hefur verið á að áður en Tryggingastofnun synji umsókn um örorkulífeyri, því endurhæfing sé ekki fullreynd, hafi stofnunin ekki lagt mat á raunverulega möguleika umsækjanda á endurhæfingu. Þá sé þetta niðurstaðan jafnvel þótt fyrir liggi álit sérfræðinga, s.s. lækna, um að frekari endurhæfing muni ekki skila árangri.
 
Umboðsmaður spyr hvort ráðherra telji tilefni til að bregðast við þeim aðstæðum sem lýst er í bréfinu og þá með hvaða hætti. Ef ekki, er beðið um skýringar á því. Óskað er svara eigi síðar en 28. júní nk.