Daðahús - sumarleiga

Umsóknir fyrir vikudvöl í Daðahúsi tímabilið 28. maí - 5. september þurfa að berast samtökunum fyrir 7. apríl nk. Þetta tímabil er húsið aðeins leigt viku í senn fyrir fatlaða og aðstandendur þeirra.

Hægt er að sækja um hér á síðunni http://www.throskahjalp.is/is/moya/formbuilder/index/index/dadahus.

Fyrsta leigutímabilið er 28. maí - 6. apríl. Eftir það er húsið leigt í viku í senn - frá föstudegi kl. 15:00 - föstudags kl. 12:00. Vikuleiga er 30. þús.kr.

Húsið er staðsett á Flúðum - aðgengi er mjög gott - svefnpláss fyrir 7 þar af eitt sjúkrarúm, en einnig eru margar aukadýnur. Húsið er heilsárshús, mjög vel útbúið og með heitum pott.

Myndir af húsinu er hægt að skoða hér á heimasíðunni.