Fundur með forsetaframbjóðendum

Átak félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir fundi með frambjóðendum til forsetakjörs. Þáttastjórnendur sjónvarpsþáttanna Með okkar augum stjórnuðu fundinum. Átta frambjóðendur mættu og voru umræður líflegar og skemmtilegar.

Átak félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir fundi með frambjóðendum til forsetakjörs. Þáttastjórnendur sjónvarpsþáttanna Með okkar augum stjórnuðu fundinum. Átta frambjóðendur mættu og voru umræður líflegar og skemmtilegar. Þátttaka var góð og var jafnframt hægt að fylgjast með á netinu.

Átak stefnir að því að halda fund með svipuðu sniði fyrir næstu alþingiskosningar.