Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við réttindavakt velferðaráðuneytisins standa fyrir fræðslukvöldum um þær breytingar sem verða í lífi fatlaðs fólks við það að komast á fullorðinsár.
Fyrstu tvö kvöldin voru í maímánuði og var þar fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á réttarstöðu fólks við 18 ára aldur . Í september verða þrjú fræðslukvöld til viðbótar um nám að loknum framhaldsskóla, atvinnumál og að flytja að heiman.
Öll fræðslukvöldin verða að Háaleitisbraut 13. 4. hæð.

Þessi fræðslukvöld eru í september:
Miðvikudaginn 7. september kl. 20.00-22.00
Nám að loknum framhaldsskóla hvað er í boði
- Kynning á diplómanámi við menntavísindasvið H.Í.
- Ágústa Björnsdóttir og Anna Kristín Gunnlaugsdóttir
- Kynning á diplómanámi við Myndlistarskólann í Reykjavík
- Margrét Norðdahl og Birkir Sigurðsson
- Kynning á Fjölmennt símenntunamiðstöð
Miðvikudaginn 14. september kl. 20.00-22.00
Atvinnumöguleikar fatlaðs fólks að loknum framhaldsskóla
- Vinnumálstofnun
- Ragnheiður Hergeirsdóttir, Bryndís Theodórsdóttir
- Vinna og verkþjálfun
- Halldóra Þ. Jónsdóttir formaður Hlutverks samtaka um vinnu og verkþjálfun
Fimmtudaginn 29. september kl. 20.00-22.00
Að flytja úr foreldrahúsum
- Lög og reglugerðir um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum
- Jarþrúður Þórhallsdóttir réttindagæslumaður
- Hvernig er staðið að því að sækja um búsetuþjónustu og húsnæði
- Þórdís L Guðmundsdóttir Reykjavíkurborg
Við biðjum ykkur um að skrá þátttöku á asta@throskahjalp.is