Landssamtökin Þroskahjálp halda landsþing sitt laugardaginn 7. október nk. á Grand hótel Reykjavík.
Dagskrá:
Kl. 09.00 - 10.00 Setning landsþings – kaffi og veitingar.
Kl. 10:00 – 12.00 Landsþing (skv. lögum samtakanna).
Kl. 12.00 – 13.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 – 16.00 Ráðstefna um rétt fatlaðs fólks til atvinnu.
- Hvernig er staða fatlaðs fólks á íslenskum vinnumarkaði?
- Hvað þarf að gera til að tryggja að fatlað fólk njóti réttar til vinnu án mismununar og aðgreiningar?
- Hver eru áform stjórnvalda í því?
- Hvað geta fyrirtæki og samtök þeirra gert til að tryggja þessi mannréttindi?
- Hver eru tækifærin og hverjar eru ógnanirnar nú og i framtíðinni?
Á málþinginu verða þessar spurningar og margar aðrar sem varða rétt fatlaðs fólks til vinnu ræddar og leitast við að svara þeim.
Allir eru velkomnir á landsþingið og til setu á aðalfundi. Kosningarétt á aðalfundi hafa fulltrúar aðildarfélaga sem framvísa kjörbréfi.
Skráning á þingið
Dagskrá ráðstefnu má skoða hér.