Mætum brýnni þörf fyrir húsnæði

Landssamtökin Þroskahjálp og Sandgerðisbær undirrituðu í sl. viku samkomulag um byggingu og rekstur íbúða fyrir fólk með fötlun að Lækjamótum 61-65 í Sandgerði. Um er að ræða íbúðakjarna með 5 íbúðum og þjónusturými. „Við erum afskaplega ánægð með að þetta samkomulag sé í höfn og erum með þessu að mæta brýnni þörf fyrir húsnæði meðal fatlaðra íbúa í bænum“, sagði Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði við undirritun samkomulagsins.

Árni Múli Jónasson framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar sagði að áætlað væri að byggingu íbúðanna yrði lokið á árinu 2017. „Það veltur þó á framgangi lagafrumvarpa um húsnæðismál sem eru til meðferðar á Alþingi hvenær hægt verður að hefja framkvæmdir en frumvörpin gera ráð fyrir betri kjörum fyrir leigjendur en núgildandi lög. Þannig er gert ráð fyrir að hægt sé að sækja um til 18% stofnkostnaðar til ríkis og 12% til sveitarfélaga,“ sagði Árni Múli.

Myndatexti: Á myndinni eru frá  vinstri: Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar,  Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri,  Sveinn E. Sigurðsson, formaður húsbyggingarsjóðs Þroskahjálpar.