Ein miljón - Þinn stuðningur skiptir máli fyrir samtökin
29.07.2013
Þroskahjálp leitar eftir stuðningi. Við treystum á að fólk drullist með okkur og taki þátt í þessu stórskemmtilega leik sem Mýrarboltinn hefur sett af stað til að styðja góð málefni. Þroskahjálp er eitt af þessum málefnum og treystir á sitt fólk til að drullast til að taka þátt og styðja gott málefni.
Þroskahjálp leitar eftir stuðningi. Við treystum á að fólk drullist með okkur og taki þátt í þessu stórskemmtilega leik
sem Mýrarboltinn hefur sett af stað til að styðja góð málefni. Þroskahjálp er eitt af þessum málefnum og treystir á sitt
fólk til að drullast til að taka þátt og styðja gott málefni.
DEILDU GLEÐINNI (meðal vina, ættingja, vinnufélaga og allra sem þú veist að vilja drullast til að leggja góðu málefni lið)
Ein milljón króna til góðgerðamála
Mýrarboltinn í samstarfi við Landsbankann, Avis bílaleigu og Carlsberg hafa lagt til eina milljón króna í sjóð
sem svo verður deilt niður á félögin fjögur. Almenningur getur haft áhrif á ráðstöfun þessa sjóðs með
því að fara inná visir.is/drullastu og kjósa það félag sem viðkomandi þykir að
eigi rétt á stæðstum hluta kökunnar. Netverjar eru eindregið hvattir til að deila upplifun sinni áfram í gegnum þartilgerðan Facebook
vinkil til að sem flestir láti til sín taka í valinu á milli félaga. Rúsínan í pylsuendanum felst svo í að sjá
þetta framáfólk verða fyrir barðinu á alvöru íslenskri drullu.
Slóðin er www.visir.is/drullastu og við hjá Þroskahjálp treystum
á þig til að drullast til að leggja okkur lið. Þeir sem vilja svo alvöru drullu er bent á http://www.myrarbolti.com/ um verslunarmannahelgina.