Nýskipaðir talsmenn barna á Alþingi
Þingmenn úr öllum stjórnmálaflokkum gerðust talsmenn barna á Alþingi í dag. Þeir undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að þeir skuldbindi sig til að hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu, leitist við að tileinka sér barnvæn sjónarmið og hafa hagsmuni barna að leiðarljósi. Birgir Ármannsson forseti Alþingi var einnig viðstaddur og tók þátt þegar þingmönnum var boðið að leika sér saman í Lego. Hver þingmaður tók með sér lego-kall og kubba til áminningar um hlutverkið sem hann tekur nú að sér og sinnir út kjörtímabilið.
Þáttur í undirbúningi fyrir hlutverkið var að sækja fræðslu barna og ungmenna um mannréttindi barna og Barnasáttmálann og um það hvernig hann getur nýst við ákvarðanatöku og stefnumótun.
„Ungmennin spurðu okkur krefjandi spurninga um málefnin sem skipta þau máli. Um geðheilbrigði, loftslagsmál, stafrænt ofbeldi og lýðræði,” sagði Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins og nýr talsmaður barna á Alþingi. Á viðburðinum fyrr í dag lýsti Hafdís fræðslunni sem þingmenn fengu og sagðist hafa lært að þegar kemur að málefnum barna ættu fullorðin að hlusta meira og tala minna.
Þetta er í fjórða sinn sem talsmenn barna á Alþingi eru skipaðir og er verkefnið samstarf Barnaréttindavaktarinnar, óformlegum vettvangi níu félagasamtaka sem vinna að réttindum barna á Íslandi. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið í hlutverki talsmanns barna frá árin 2017 og brýndi hún þingmennina til þess að beita sér fyrir réttindum barna og taka sér til fyrirmyndar Pál Val Björnsson, fyrrum þingmann sem hlaut Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða árið 2016 fyrir störf sín á Alþingi.
Hver stjórnmálaflokkur tilnefnir einn aðalmann og einn varamann. Eftirtaldir þingmenn gerast í dag talsmenn barna á yfirstandandi þingi:
Flokkur fólksins
Aðalmaður: Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Varamaður: Guðmundur Ingi Kristinsson
Framsóknarflokkur
Aðalmaður: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
Varamaður: Ágúst Bjarni Garðarsson
Miðflokkur
Aðalmaður: Bergþór Ólason
Varamaður: Anna Kolbrún Árnadóttir
Píratar
Aðalmaður: Gísli Rafn Ólafsson
Varamaður: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
Samfylking
Aðalmaður: Oddný G. Harðardóttir
Varamaður: Jóhann Páll Jóhannsson
Sjálfstæðisflokkur
Aðalmaður: Diljá Mist Einarsdóttir
Varamaður: Vilhjálmur Árnason
Viðreisn
Aðalmaður: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Varamaður: Sigmar Guðmundsson
Vinstri Græn
Aðalmaður: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Varamaður: Orri Páll Jóhannsson
Barnaréttindavaktin stendur að verkefninu talsmenn barna á Alþingi til að tryggja börnum málsvara á Alþingi.
Barnaréttindavaktin er óformlegur samstarfsvettvangur félagasamtaka sem öll starfa að málefnum barna, um bætt réttindi þeirra.
Að Barnaréttindavaktinni standa eftirfarandi félagasamtök:
Barnaheill – Save the Children á Íslandi - Heimili og skóli - Mannréttindaskrifstofa Íslands - Rauði krossinn - Samfés - Ungmennafélag Íslands - UNICEF á Íslandi - Þroskahjálp - Öryrkjabandalag Íslands.