Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa

FFA – fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur í samvinnu við CP félagið, boða til kynningarfundar mánudaginn 15. apríl kl. 17.00 – 18:30 að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Efni fundarins er: Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa sem tekur gildi 4. maí 2013

                  

 Markmið með nýju greiðsluþátttökukerfi.

  • Auka jöfnuð milli einstaklinga óháð sjúkdómum.
  • Draga úr útgjöldum þeirra sem hafa mikil lyfjaútgjöld.
  • Í dag er ekkert hámark á lyfjakostnaði einstaklinga.

 

Hvaða breytingar hefur þetta í för með sér?

 Guðrún Björg Elíasdóttir og Margrét Rósa Kristjánsdóttir lyfjafræðingar hjá  Lyfjadeild Sjúkratrygginga koma og kynna greiðsluþáttökukerfið og svara fyrirspurnum.

Allir velkomnir -   aðgangur ókeypis

SKRÁNING Á  asta@throskahjalp.is

 

 

Að FFA standa: Landssamtökin Þroskahjálp, Ás styrktarfélag, Sjálfsbjörg landssambandið og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra