Fimmtudaginn 24. mars verða samstöðutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir Úkraínu.
Ákveðið hefur verið að öll miðasala vegna tónleikanna, sem og veitingasala í Hörpu þetta kvöld, renni óskert til söfnunar Þroskahjálpar, Átaks, Tabú, NPA miðstöðvarinnar og ÖBÍ fyrir fatlað fólk í Úkraínu.
Landssamtökin Þroskahjálp þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóg svo þetta megi verða, meðal annarra Lilju Dögg Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, starfsfólki Sinfóníuhljómsveitar Íslands og rekstraraðilum í Hörpu.
Styrkja söfnunina
Reikningur 526-26-5281
|
|
Kennitala 521176-0409
|