Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra)

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra).

 

1.október 2024

 

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar.

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir. Samtökin byggja stefnu sína á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem og heimsmarkmiðum SÞ.

Samtökin  lýsa yfir stuðningi við þessar breytingar á lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.