Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (aldurstengd örorkuuppbót). Þingskjal 126 - 124. mál.

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (aldurstengd örorkuuppbót). Þingskjal 126 - 124. mál.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið sent til umsagnar.

Aldurstengdri örorkuuppbót er m.a. ætlað að koma til móts við þann hóp sem hefur oft óverulegar lífeyris- og  fjármagnstekjur. Þá er eignastaða þess hóps oft lakari en þeirra sem verða fyrir skerðingu eða veikjast síðar á lífsleiðinni. Það á við hjá fólki sem svo háttar til um og hefur verið á örorkubótum og nær 67 ára aldri.

Með vísan til framangreinds lýsa Landssamtökin Þroskahjálp stuðningi við frumvarpið.

 Nálgast má frumvarp sem umsögnin á við hér.

Virðingarfyllst,
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar