Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022 (aukin réttindi foreldra), 146. mál
26. mars 2025
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Samtökin taka undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu og lýsa stuðningi við það.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Nálgast má lagafrunvarpið sem umsögnin á við hér.