Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar[1] um tillögu til þingsályktunar um markvissa fræðslu um kynjafræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kynferðislegum samskiptum, 165. mál.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þingsályktunartillögunni og vilja koma eftirfarandi varðandi hana á framfæri við allsherjar- og menntamálanefnd.

Afar mikilvægt er að öll ungmenni fái fræðslu um kynfrelsi og samskipti kynjanna við hæfi, óháð uppruna, fötlun, kyni, kyngervi, kynhneigð og annarra áhrifaþátta í bakgrunni og umhverfi þeirra.

Samtökin hvetja stjórnvöld til þess að taka tillit til þarfa fatlaðra barna og ungmenna þegar kemur að fræðslu sem fjallað er um í þingsályktunartillögunni, með sérstaka áherslu á þarfir og reynsluheim ungmenna með þroskahömlun.

Barngerving fatlaðra ungmenna leiðir til að of oft er litið er svo á að þau hafi ekki áhuga á nánum samböndum, kynjafræði og kynferðislegum samskiptum. Af þeim sökum er kynfræðslu fyrir hópinn oft ábótavant. Líta verður sérstaklega til þessara fordóma í þróun fræðsluefnis og lýsa samtökin yfir vilja til að koma að vinnu við gerð þess.   

Landssamtökin Þroskahjálp óska eindregið eftir að fá fund með allsherjar- og menntamálanefnd til að gera nefndinni betur grein fyrir sjónarmiðum sínum og áherslum.

Virðingarfyllst,

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna

Nálgast má þingsályktunartillöguna sem umsögnin á við hér:



[1]  Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Um 20 félög eiga aðild að samtökunum.