Upplýsingatorg opnar á Island.is. Tímamót í þjónustu við aðstandendur fatlaðra barna

 

Nú má finna á einum stað ítarlegar upplýsingar um greiningu, réttindi og þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.

Þetta vefsvæði, sem unnið er af Þroskahjálp markar tímamót í þjónustu við aðstandendur fatlaðra barna.

Vefsvæðið kallast Fötluð börn og er undir Lífsviðburðir á Island.is

Smelltu hér til að skoða Upplýsingatorgið á Ísland.is

 

Katarzyna Beata Kubiś, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp hefur borið hitann og þungann af þessu verkefni.
Frumkvæðið varð til hjá henni eftir að hafa þvælst um kerfið að leita að úrræðum fyrir son sinn.

 

Mynd af Kasiu, verkefnastjóra þar sem hún situr á málþingi á Grand hótel

 

Kasia, eins og hún er kölluð, vildi ekki bara safna saman upplýsingunum saman á einn stað, heldur gera þjónustuna aðgengilega fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna.

Á Island.is er verkefnið bæði á íslensku og ensku. Í næsta áfanga verkefnisins verða upplýsingarnar aðgengilegar á fleiri tungumálum og efninu miðlað á fjölbreyttan hátt.

Verkefnið er unnið af Þroskahjálp í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðuneytið sem veitti styrk til þess árið 2023.

 

Smelltu hér til að skoða Upplýsingatorgið á Ísland.is