Verk Loja Höskuldssonar prýða almanakið í ár og eru bæði útsaumsverk og eftirprentanir í pottinum fyrir happdrættið. Þessi mynd heitir Afsakið en má ég ná í boltann minn úr fallega garðinum þínum og er frá árinu 2018.
Dregið hefur verið í happdrætti almanaks Landssamtakanna Þroskahjálpar 2021.
Nálgast má vinningstölur hér. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju, en í pottinum er fjöldi verka og eftirprentana eftir ástsælustu listamenn þjóðarinnar.
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn. Almanakssalan er stærsti liður í fjáröflun samtakanna, sem rekin eru nær eingöngu fyrir framlög einstaklinga.
Enn verður hægt að kaupa ónúmeruð almanök. Það þýðir að þau eru utan happdrættisins.