Strandgata í Hafnarfirði
Smelltu fyrir auðlesinn texta
- Hafnarfjörður ætlar að búa til aðgengis-stefnu.
- Þau vilja fá sögur og hugmyndir frá íbúum í Hafnarfirði.
- Aðgengi snýst um aðgengi að byggingum og almennings-rýmum eins og til dæmis útivistarsvæði og fleira.
- Aðgengi snýst líka um upplýsingar og þjónustu.
- Þú getur smellt hér til að senda inn sögur.
Á samráðsvefnum Betri Hafnarfirði hefur verið stofnað svæði fyrir reynslusögur og hugmyndir um aðgengismál í sveitarfélaginu. Frumkvæði að stofnun svæðisins kemur frá starfshóp sem nýlega var stofnaður með það verkefni að marka heildstæða stefnu í aðgengismálum í Hafnarfirði.
Aðgengismál varða öll svið samfélagsins og ná yfir breitt svið, allt frá aðgengi að byggingum og almenningsrýmum til aðgengis að upplýsingum og þjónustu bæjarfélagsins. Hugmyndir og reynslusögur sem berast á Betri Hafnarfirði munu nýtast hópnum til að móta stefnuna og koma með tillögu að innleiðingaráætlun.
Smelltu hér til að skoða vefinn.