Málefni fatlaðs fólks í þínu sveitarfélagi - kosningar 2014

Næstu sveitarstjórnakosningar eru sögulegar fyrir fatlað fólk. Þær eru fyrstu kosningar eftir að sveitarfélögin í landinu tóku við sértækri félagsþjónustu fyrir fatlað fólk, frá ríkinu. Gera má ráð fyrir því að margir, ekki síst fatlað fólk og aðstandendur þeirra, vilji fá að vita hvernig framboðin í einstökum sveitarfélögum sjá framtíðaruppbyggingu þessarar þjónustu í sínu sveitarfélagi.

Næstu sveitarstjórnakosningar eru sögulegar fyrir fatlað fólk. Þær eru fyrstu kosningar eftir að sveitarfélögin í landinu tóku við sértækri félagsþjónustu fyrir fatlað fólk, frá ríkinu. 

Gera má ráð fyrir því að margir, ekki síst fatlað fólk og aðstandendur þeirra, vilji fá að vita hvernig  framboðin í einstökum sveitarfélögum sjá framtíðaruppbyggingu  þessarar þjónustu í sínu sveitarfélagi.

Því er við hæfi að væntanlegir sveitarstjórnamenn geri kjósendum sínum grein fyrir hvernig þeir hyggist standa að þessari þjónustu á næsta kjörtímabili fái þeir til þess umboð.

Til að auðvelda kjósendum að kynna sér stefnu flokkanna hafa Landssamtökin Þroskahjálp, Blindrafélag Íslands og Sjálfsbjörg landsambandið  ákveðið að bjóða framboðunum að birta stefnu  þeirra í þessum málaflokki á heimasíðum samtakanna og koma þeim á framfæri á fésbókarsíðum sínum.

Vonumst við eftir að fleiri framboð sendi okkur svör sín á næstunni og munum við bæta þeim við um leið.

Undir "Þjónusta" hér á síðu Þroskahjálpar er hægt að finna "X-2014 - Kosningar" eða smella hér.