Málþing um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Mánudaginn 14. október 2013 á Grand hóteli, stendur velferðarráðuneytið í samvinnu við Landssamtökin Þroskahjálp, innanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Öryrkjabandalag Íslands, fyrir málþingi um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.


 Sjá nánar á vef velferðarráðuneytis þar sem jafnframt má nálgast skráningarform.

Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 7. október.
Á málþinginu verður leitast við að fá fram umræðu um málaflokkinn á breiðum grundvelli.
Markmiðið er að þátttakendur deili hugmyndum og læri hver af öðrum. Þá verður leitast við
að fá fram sjónarmið um það sem betur má fara og umræður um hvernig bregðast megi við og
bæta úr.
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í beinni útsendingu á vef ráðuneytisins þar sem
upptökur frá þinginu verða einnig aðgengilegar.


Dagskrá:

Málþingsstjóri fyrir hádegi er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneyti

09:40-10:00 Húsið opnar – skráning
10:00 Ávarp Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra
10:10 Ímynd og fræðsla

               Réttindavakt velferðarráðuneytis: Skyldur og helstu verkefni (Ingibjörg Broddadóttir, formaður
                     velferðarvaktarinnar)
               Sendiherraverkefnið: Kynning á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (María
                        Hreiðarsdóttir og Skúli Steinar Pétursson sendiherrar)
               Að halda áfram! (Nanna Þórisdóttir Hugarafli)

11:05 Mamiko Dís Ragnarsdóttir tónlistarkona flytur eigin lög: Skrýtin og Itsuka
11:15 Sjálfstætt líf (fyrri hluti)
                  Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum (Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri
                        Landssamtakanna Þroskahjálpar)
                  Nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu (Halldór S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri
                        öldrunarheimila Akureyrarbæjar)


11:55 HÁDEGISVERÐUR


Málþingsstjóri eftir hádegi er Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneyti

12:40 Sjálfstætt líf (seinni hluti)
           Tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð (Bryndís Snæbjörnsdóttir, fulltrúi í
                  verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð)
           NPA - Reynslusaga frá Akureyri (Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri fjölskyldudeild
                   Akureyrarbæjar)
           NPA er eins og rautt chili: Reynsla fatlaðs fólks af sjálfstæðu lífi (Freyja Haraldsdóttir,
                   framkvæmdastýra NPA miðstöðvarinnar)
13:35 Baráttupopp: Lagagjörningur Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur fötlunarlistakonu
13:45 Þátttaka
             Notendaráð fatlaðs fólks (Kristín Þóra Albertsdóttir, formaður notendaráðs á Suðurlandi og
                   Ragnheiður Jónsdóttir, aðstoðarformaður notendaráðsins)
             Frístundastarf SFS fyrir fötluð börn og unglinga (Sigríður Rut Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri á
                   skrifstofu frístundamála í málefnum fatlaðs fólks hjá Reykjavíkurborg)
14:25 Heilbrigði (fyrri hluti)
              Efling heilsugæslunnar til að mæta þörfum fatlaðs fólks (Gerður A. Árnadóttir, heimilislæknir
                   Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins)
              Aðgangur að heilbrigðisþjónustunni (Guðríður Ólafsdóttir, félagsmálafulltrúi Öryrkjabandalagi
                   Íslands)
15:05 KAFFI
15:30 Heilbrigði (seinni hluti)
                Geðheilsustöð Breiðholts: Samvinna og samþætting í þjónustu við geðfatlaða (Sigríður Hrönn
                     Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og Erla Alfreðsdóttir iðjuþjálfi)
15:55 Mannréttindi
               Fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (Teitur Skúlason,
                     sérfræðingur innanríkisráðuneyti)
16:10 Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
                Yfirfærslan: Forsendur, áskoranir og árangur (Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur hjá Sambandi
                     íslenskra sveitarfélaga)
                Sjónarhorn notanda (Aileen Soffía Svensdóttir, formaður Átaks - Félags fólks með
                    þroskahömlun)
16:50-17:00 Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, slítur málþinginu