FFA fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur í samvinnu við CP félagið, boða til kynningarfundar mánudaginn 15. apríl kl. 17.00 18:30 að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Efni fundarins er: Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa sem tekur gildi 4. maí 2013
Markmið með nýju greiðsluþátttökukerfi.
- Auka jöfnuð milli einstaklinga óháð sjúkdómum.
- Draga úr útgjöldum þeirra sem hafa mikil lyfjaútgjöld.
- Í dag er ekkert hámark á lyfjakostnaði einstaklinga.
Hvaða breytingar hefur þetta í för með sér?
Guðrún Björg Elíasdóttir og Margrét Rósa Kristjánsdóttir lyfjafræðingar hjá Lyfjadeild Sjúkratrygginga
koma og kynna greiðsluþáttökukerfið og svara fyrirspurnum.
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis
SKRÁNING Á asta@throskahjalp.is
Að FFA standa: Landssamtökin Þroskahjálp, Ás styrktarfélag, Sjálfsbjörg landssambandið og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra