Áskorun til stjórnvalda um að tryggja það að fötluðu fólki sé kleift að taka virkan og fullan þátt í stjórnmálum og opinberu lífi til jafns við aðra.

Fundur Landssamtakanna Þroskahjálpar með dómsmálaráðherra.

Formaður og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar funduðu í morgun með Sigríði Á Andersen, dómsmálaráðherra. Á fundinum var farið yfir ýmsar ráðstafanir og aðgerðir sem Landssamtökin Þroskahjálp telja nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld grípi til ef þau ætla að standa við skuldbindingar sínar um að tryggja fötluðu fólki án mismununar þau mannréttindi sem mælt er fyrir um í ýmsum fjölþjóðlegum samningum sem Ísland hefur undirgengist. Þessar skuldbindingar eru sérstaklega áréttaðar í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslenska ríkið fullgilti sl. haust og skuldbatt sig þar með til að virða og framfylgja.
Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um útlendingamál.

Lesa meira

Mistök við lagasetningu vegna notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA)?

Í bráðabirgðaákvæði IV í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, hefur verið mælt fyrir um að félags- og húnsæðismálaráðherra skuli leggja fram frumvarp um að notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) verði „eitt meginform þjónustu við fatlað fólk.“ Alþingi samþykkti þetta ákvæði og setti í lögin fyrir 6 árum síðan, þ.e. árið 2010
Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um fjárlagafrumvarp 2017

Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um tilvísanir fyrir börn.

Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkartryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

Lesa meira

Umsögn landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.

Lesa meira

Áætlanir sveitarfélaga í húsnæðismálum, stofnframlög o.fl.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa sent öllum borgar-, bæjar og sveitarstjórnum í landinu þetta bréf varðandi húsnæðismál fatlaðs fólks.
Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um stjórn lögreglurannsókna og samvinnu héraðssaksóknara og lögreglustjóra við rannsókn sakamála.

Hér á eftir fara nokkrar ábendingar sem Landssamtökin Þroskahjálp vilja koma á framfæri við innanríkisráðuneytið og önnur hlutaðeigandi stjórnvöld varðandi ofbeldi gegn fötluðu fólki og skyldu ríkisins til að tryggja fötluðu fólki aðgang að réttarkerfinu og vernd réttarkerfisins til jafns við aðra. Samtökin telja að líta beri mjög til þessara skyldna og eftirfarandi sjónarmiða við setningu reglna um lögreglurannsóknir og framkvæmd þeirra.
Lesa meira

Ályktun stjórnar Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar átelur harðlega það virð­ingar- og til­lits­leysi sem allt of oft einkennir sam­skipti stjórn­valda ríkis og sveitarfélaga við fatlað fólk. Stjórnin bendir á að virðing og tillitssemi á vera leið­ar­ljós við alla fram­kvæmd þjónustu við fatlað fólk, eins og er sérstaklega áréttað í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að virða og framfylgja.
Lesa meira