22.12.2015
Að undanförnu hefur í fjölmiðlum verið fjallað nokkuð um mál erlends manns sem er með þroskahömlun samkvæmt því sem þar hefur komið fram. Maðurinn sætir lögreglurannsókn og hefur setið í gæsluvarðhaldi.
Þetta mál og fleiri mál sem hafa komið upp á undanförnum vikum og mánuðum hafa vakið ýmsar spurningar varðandi skyldur stjórnvalda til að tryggja að fólk með þroskahömlun og annað fatlað fólk fái réttláta og mannúðlega meðferð í réttarkerfinu og hafi aðgang að því til jafns við aðra.
Lesa meira
21.12.2015
Á landsþingi Landssamtakanna þroskahjálpar í október sl. var samþykkt eftirfarandi ályktun varðandi flóttafólk:
Landsþing Landssamtakanna Þroskahjálpar hvetur stjórnvöld til að huga sérstaklega að alþjóðlegum skyldum til að taka tillit til þarfa fatlaðs fólks fyrir stuðning og vernd við mótun og framkvæmd stefnu í málefnum flóttafólks. Þá hvetur landsþingið stjórnvöld til að beita sér fyrir því í alþjóðlegu samstarfi varðandi vanda flóttafólks að sérstaklega verði hugað að þeirri miklu þörf fyrir vernd og stuðning sem fatlað fólk á stríðshrjáðum svæðum hefur.
Lesa meira
21.12.2015
Landssamtökin Þroskahjálp sendum neðangreint bréf velferðar- og innanríkisráðuneytum, Sambandi ísl. sveitarfélaga og Rauða krossinum á íslandi
Lesa meira
16.12.2015
Bókun
11. desember 2015
Ég undirrituð, fulltrúi Landssamtakanna Þroskahjálpar, í samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks, lýsi vonbrigðum með að loksamkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk, sem undirritað var í dag, skuli ekki taka til þeirra fötluðu einstaklinga sem nú búa á Landspítala í Kópavogi. Brýnt er að hlutaðeigandi stjórnvöld finni svo skjótt sem verða má lausn á þjónustu- og búsetumálum þeirra í samræmi við þarfir þeirra og réttindi
Lesa meira
16.12.2015
Heil og sæl Unnur Brá.
Við beinum þessu erindi til þín sem formanns allsherjar og menntamálanefndar.
Eins og þú veist er nefndin með til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um happdrætti og talnagetraunir (framlenging starfsleyfa) - Þingskjal 236 224. mál. Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til að framlengd verði til ársins 2034 heimild ráðherra til að veita Íþróttasambandi Íslands, Ungmennafélagi Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands leyfi til þess að starfrækja saman, í nafni félags sem samtök þessi stofna (Íslensk getspá) svonefndar talnagetraunir. Með sömu lögum er sú starfsemi bönnuð öðrum.
Lesa meira
14.12.2015
Vistheimilanefnd óskar vinsamlegast eftir því að þeir sem vistaðir voru sem börn á Kópavogshæli, eða aðstandendur þeirra, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal og upplýsa hana um vistunina, hafi samband við nefndina fyrir 1. febrúar 2016 í síma 545 8461 eða á netfangið vistheimilanefnd@for.is
Lesa meira
11.12.2015
Ríki og sveitarfélög undirrituðu í dag lokasamkomulag um fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Einnig var kynnt skýrsla verkefnisstjórnar um faglegt og fjárhagslegt mat á yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaganna Nánari upplýsingar um samkomulagið og skýrslu verkefnisstjórnar er hægt að nálgast á vef velferðarráðuneytisins. Nánari upplýsingar um samkomulagið er hægt að nálgast á vef velferðarráðuneytisins.
Lesa meira
07.12.2015
Auglýst er eftir tilnefningum til listamanns Listar án landamæra 2016.
Árið 2015 var það listamaðurinn Karl Guðmundsson sem hlaut titilinn
og prýddu verk hans allt kynningarefni hátíðarinnar.
Tilnefningar og ábendingar sendist í tölvupósti á netfangið:
listanlandamaera@gmail.com fyrir 1. janúar 2016.
Senda þarf í hið minnsta fjórar myndir af verkum eftir listamanninn
og ferilskrá sem rekur fyrri sýningar og listræn störf.
Lesa meira
04.12.2015
Landssamtökin Þroskahjálp og Hafnarfjarðarbær skrifuðu í dag undir samkomulag vegna lóðar að Öldugötu 41 í Hafnarfirði. Til stendur að húsbyggingarsjóður Þroskahjálpar reisi þar leiguíbúðir ætlaðar sex fötluðum einstaklingum. Áætlað er að húsið verði tilbúið til notkunar 2018.
Lesa meira