Fréttir

Þroskahjálp ítrekar ósk um úttekt á starfsemi Sólheima

Landssamtökin Þroskahjálp ítreka og minna á erindi sem samtökin sendu félagsmálaráðuneytinu 24. september 2019 um áskorun sína til félagsmálaráðuneytisins um að sjálfstæð, óháð og vönduð úttekt fari fram á starfsemi Sólheima. Þau telja afar óheppilegt að félagsmálaráðherra sem ber ábyrgð á eftirliti með að fatlað fólk njóti mannréttinda og framfylgd margra ákvæða samnings S.Þ. um réttindi fatlaðs fólks skuli lýsa því yfir opinberlega að starfsemi Sólheima sé góð og metnaðarfull án þess að farið hafi fram úttekt sem augljóslega er nauðsynleg.
Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar [1] um frumvarp til laga um vernd uppljóstrara, 362 mál.

Lesa meira

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform að breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007.

Lesa meira

Fundur um fræðsluefni fyrir seinfæra foreldra

Þann 22. febrúar kl. 10.00 fer fram fundur um fræðsluefni fyrir seinfæra foreldra. Þroskahjálp óskar eftir aðstoð þinni!
Lesa meira

Frábær mæting á stofnfund Ungmennaráðs Þroskahjálpar!

Í gær, þann 23. janúar, fór fram stofnfundur Ungmennaráðs Þroskahjálpar og sóttu 18 hress ungmenni fundinn og var margt sem brann á hópnum. Það sem hæst bar var til dæmis hvað varðar menntamál, atvinnutækifæri, búsetu og framtíðina! Þá ætla krakkarnir að skipuleggja heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir og fá fræðslu um hin ýmsu málefni.
Lesa meira

Breytingar á skrifstofu Þroskahjálpar!

Anna Lára Steindal hefur verið ráðin verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna og fatlaðs fólks af erlendum uppruna, til eins árs. Þá mun Ásta Friðjónsdóttir, fulltrúi á skrifstofu minnka við sig vinnu.
Lesa meira

Svindl póstur!

Í gær var sendur út svindlpóstur í nafni starfsmanns Þroskahjálpar.
Lesa meira

Fyrsti fundur ungmennaráðs Þroskahjálpar

Á fimmtudaginn 23. janúar, kl. 17.00-19.00 verður fyrsti fundur ungmennaráðs Þroskahjálpar!
Lesa meira

Dregið hefur verið í almanakshappdrætti Þroskahjálpar!

Í meira en 30 ár hafa Landssamtökin Þroskahjálp gefið út almanak til þess að fjármagna starfsemi sína, en samtökin reiða sig nær alfarið á frjáls framlög. Almanak Þroskahjálpar er einnig miði í listaverka happdrætti en í pottinum eru verk eftir marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar!
Lesa meira

Áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á vinnumarkaðinn

Um mitt ár 2018 skipaði forsætisráðherra nefnd um fjórðu iðnbyltinguna og var markmiðið með skipan nefndarinnar að „greina frá umræðu um fjórðu iðnbyltinguna á alþjóðavettvangi, afleiðingar hennar fyrir íslenskt samfélag og tækifæri Íslands í þessum breytingum“.
Lesa meira